|
Ullarselið á Hvanneyri er verslun með vandað handverk, ullarvörur úr íslenskri ull og gæðahandverk úr íslensku hráefni.
Þetta er markmið hópsins sem heldur úti Ullarselinu.
Vörurnar sem í boði eru í Ullarselinu eru handspunnið band, peysur úr handspunnu bandi sem og flíkur úr lopa, léttlopa og ber þar hæst hinar sérhönnuðu Borgarfjarðarpeysur. Jurtalitað band, kanínufiðuband og fiðuvörur, skartgripir úr hrosshári, steinum, hornum og skeljum. Gestaþrautir úr tré, tilbúinn útsaumur úr jurtalituðu bandi, þæfðir hattar, inniskór og vettlingar.
Ullarselinu á Hvanneyri var komið á fót haustið 1992, sem þróunarverkefni, að tilstuðlan Bændaskólans á Hvanneyri, Búnaðarsamtaka Vesturlands og Kvenfélagasambandanna á Vesturlandi.
Ullarselið er verslun og vinnustofa áhugafólks af Vesturlandi um ullariðn, þar sem gömul vinnubrögð við ullarvinnslu eru notuð. Í versluninni er handverkið haft í hávegum. Meðal annars er kembt, spunnið, prjónað, flækt, ofið og spjaldofið.
Ullarselið hefur tekið í sölu plötulopa, léttlopa og eingirni frá Ístex sem og viðeigandi prjóna og uppskriftir.
Ullarselið er opið á
sumrin alla daga frá kl. 12:00-18:00.
frá 20. maí
Á veturna er opið á fimmtudögum, föstudögum og laugardögum frá kl. 13:00-17:00. Vetraropnun tekur gildi í september. Einnig er opnað fyrir hópa ef óskað er eftir og tök eru á.
Sími 437 oo77
netf. ull@ull.is
Hlekkir:
|
 |
|
Jurtalitað ullarband | |