|
Ullarselið á Hvanneyri er verslun með vandað handverk, ullarvörur úr íslenskri ull og gæðahandverk úr íslensku hráefni.
Þetta er markmið hópsins sem heldur úti Ullarselinu.
Vörurnar sem í boði eru í Ullarselinu eru handspunnið band, peysur úr handspunnu bandi sem og flíkur úr lopa, léttlopa og ber þar hæst hinar sérhönnuðu Borgarfjarðarpeysur. Jurtalitað band, kanínufiðuband og fiðuvörur, skartgripir úr hrosshári, steinum, hornum og skeljum. Gestaþrautir úr tré, tilbúinn útsaumur úr jurtalituðu bandi, þæfðir hattar, inniskór og vettlingar.
Ullarselinu á Hvanneyri var komið á fót haustið 1992, sem þróunarverkefni, að tilstuðlan Bændaskólans á Hvanneyri, Búnaðarsamtaka Vesturlands og Kvenfélagasambandanna á Vesturlandi.
Ullarselið er verslun rekin af Vestlendingum sem hafa áhuga á ullariðn, þar sem gömul vinnubrögð eru viðhöfð. Í versluninni eru vörur sem eru unnar úr íslensku hráefni með fjölbreyttum aðferðum. Strangt gæðaeftirlit er á þeim vörum sem í boði eru en engin vara fer í búðina án skoðunar.
Ullarselið selur ennfremur vörur frá Ístex bæði band og uppskriftir.
Opnunartími: Frá 1. júní - 31. ágúst er opið alla daga frá kl. 12:00-18:00.
Frá 1. september - 31. maí er opið á fimmtudögum, föstudögum og laugardögum frá kl. 13:00-17:00.
Einnig er opnað fyrir hópa ef óskað er eftir og tök eru á.
Sími 437 0077
netf. ull@ull.is
|
 |
|
Jurtalitað ullarband | |