ÍslenskaEnglishDansk
ULLARSELIÐ Á HVANNEYRI


16. maí 2013 22:28

Opnunartími

Um hvítasunnuna verður opið frá 13 - 17.  Sumaropnun tekur svo gildi þann 1. júní og þá verður opið alla daga frá kl. 12 - 18. 

 
16. maí 2013 22:24

Enn meira hugarflug

Þann 9. maí kom Sunneva Hafsteinsdóttir með fyrirlestur að Hvanneyri.  Hann var í sama anda og á ráðstefnunni í Búðardal og var vel sóttur bæði af félögum í Ullarselshópnum og öðrum.   

 
14. apríl 2013 11:27

Hugarflug um handverk 13. apríl

Nokkrir félagar sóttu ráðstefnu í Búðardal sem nefndist Hugarflug um handverk og var haldin á vegum handverksfélagsins Bolla. 

Þar var sýning á fjölbreyttu handverki og fróðlegir fyrirlestrar úr ýmsum áttum. 

 
4. desember 2012 09:42

Jólamarkaður Ullarselsins

Jólamarkaður Ullarselsins verður haldinn þann 6. desember nk. kl. 16 - 18.   

 
19. júlí 2012 13:46

Félagsfundur var haldinn í Ullarselinu 4.júlí 2012

Aðalfundarefnið var undirbúningur fyrir landskeppnina Ull í fat.

Ennfremur kom fram að Bryndís Geirsdóttir hefur óskað eftir samstarfi við Ullarselið varðandi gerð sjónvarpsþátta.

Umræður urðu um íslenskar lopapeysur sem framleiddar eru erlendis en seldar hér.  Í framhaldinu var eftirfarandi yfirlýsing sett fram:

Ullarselshópurinn tekur heilshugar undir umræðu um mikilvægi þess að hverskyns handverk og minjagripir sem kenndir eru við Ísland og merkt sem slíkt, sé unnið á Íslandi.  Þeir sem vilja kaupa íslenskar vörur eru ekki að leita eftir vörum framleiddum annarsstaðar.  Þeir sem kjósa að láta vinna sínar vörur erlendis eiga að sýna þá lágmarksvirðingu að leyfa því fólki sem vinnur handverkið að njóta þess og merkja vörurnar í samræmi við það.

 
9. júlí 2012 10:10

Ull í fat á Safnadeginum

Í gær fór landskeppnin Ull í fat fram á Hvanneyri.  Keppt var í 2 manna liðum og að þessu sinni voru 3 lið skráð til leiks.

Verkefnið sem var að spinna band og prjóna tvíþumla sjóvettling tók röskar 3 klst. með viðeigandi hléum. Lið Ullarselsins skipuðu þær Kristín Gunnarsdóttir og Ingibjörg Jónasdóttir. María Pálsdóttir og Elín Kjartansdóttir skipuðu lið sem bar heitið Norðaustanvindur en Jenný Karlsdóttir og Sigrún Indriðadóttir skipuðu liðið Norðaustanvind og sigruðu þær með frábæru handverki og hönnun.  Keppninsstjóri var Ágústa Þorvaldsdóttir en í dómnefnd voru þau Ástríður Einarsdóttir, Gerður Guðnadóttir og Guðmundur Hallgrímsson. 

 
2. júní 2012 21:14

Ull í fat

Keppnin Ull í fat verður haldin á vegum Ullarselsins í sumar.  Fyrir valinu varð safnadagurinn, 8. júlí og verður dagskrá þann dag í samstarfi við Landbúnaðarsafnið. 

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í keppninni þurfa að skrá sig til leiks í Ullarselinu í síma: 4370077 á opnunartíma þ.e. milli 12 og 18 alla daga fyrir 23. júní.  Gefa þarf upp nafn á tengilið með símanúmer og netfang.

 
22. desember 2011 19:37

Jólakveðja

Ullarselið óskar viðskiptavinum sínum gleðilegra jóla með þökk fyrir viðskiptin á árinu. Verslunin verður opin eftir áramótin frá og með 5. janúar samkvæmt vetraropnun. 

 
4. desember 2011 17:04

Opnunartími í desember

27. nóvember 2011 18:13

Jólamarkaður

18. maí 2011 22:53

Opnunartími í sumar

16. apríl 2011 19:50

Opnunartími um páskahelgina

20. maí 2010 20:36

Sumaropnun

6. janúar 2010 12:21

Prjónabækur

5. desember 2009 10:21

Jólamarkaðurinn

24. nóvember 2009 10:40

Heimsóknir og hannyrðakvöld

23. október 2009 21:10

Prjónakvöld

22. október 2009 23:25

Spjaldvefnaður

22. október 2009 23:19

Haustfagnaður í Dalaýslu á Laugardaginn.

21. október 2009 11:03

fundur í Ullarselinu

2. september 2009 11:17

Haustopnun

11. ágúst 2009 09:01

Nyjasta blaðið af Lopi nr. 29

17. júní 2009 15:17

Prjónakennsluvefur Arndísar

8. maí 2009 19:19

Samkeppni. Þráður fortíðar til framtíðar.


eldri fréttir

UpplýsingarAthyglisv. staður
KirkjugarðurFerðamannaverslun
HandverkKirkja